Jæja... þá er prentun og gormun á misserisverkefni lokið
Nú
tekur bara undirbúningur fyrir málsvörnina við... get ekki sagt að
ég sé agalega spennt fyrir henni en segjum bara að hún
reddist!!
Ég hlakka alveg ferlega mikið til að koma heim í jólafrí sem
verður í lok þessarar viku. Þá ætla ég sko að sofa út og hvíla mig.
Þetta er búið að vera mikil keyrsla og ég er orðin frekar lúin ef
ég á að segja alveg eins og er. Það verður bara slappað af í
jólafríinu og kannski reynt að hitta fólk sem ég hef ekki séð í
margar vikur... þetta er ekki hægt sko!! Reyndar á ég jólainnkaupin
eftir en það ætti nú alveg að reddast þar sem ég hef rúma viku til
stefnu í jólagjafakaup.
Ég varð fyrir verulegum vonbrigðum þegar ég komst að því að ég
kemst ekki inn á svæðið núna um áramótin. Ég þarf að húka í þessum
sumarbústað töluvert lengur
Það er víst ekki von að ég komist á
campus fyrr en í mars í fyrsta lagi... ekki alveg að meika það!!
Það er frekar pirrandi að þurfa alltaf að keyra á milli vitandi það
að þorri nemenda þarf bara að ganga nokkur skref og er þá kominn í
skólann. Reyndar er alveg fínt að vera í bústaðnum sjálfum. Það
væri alveg súper ef hann væri í göngufæri því það er í raun betra
að búa í sumarbústað en á campus. Við búum bara tvær hér en á
campus eru 6 í íbúð og deila eldhúsi, en hver hefur sitt
baðherbergi sem er auðvitað bara nauðsynlegt! Ég vona bara að ég
komist inn þarna sem fyrst... krossa bara fingur!
En jæja ætla ekkert að vera að hafa þetta lengra í bili... ætti
kannski bara að slökkva á þessari tölvu minni til tilbreytingar!!
Ég fer að halda að hún sé límd við mig!! 