Ása Gunnur á Bifröst
18.10.2006 11:54:36 / asagunn

Ammæli

Hún Erla á afmæli í dag. Hún er orðin 27 ára gömul en er alltaf 24 ára í anda :) Innilega til hamingju með daginn.

Hafðu það svakalega gott í dag Erla mín.


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 14:25:14 / asagunn

Netdrasl

Jæja........ ég er nú ekki alveg að standa mig hérna í þessu blogg-dæmi... ætti kannski bara að hætta þessu rugli!!

En allavega.... smá update. Skólinn gengur sinn vanagang. Ég er búin að vera í frekar mikið af tímaverkefnum a.k.a. prófum sem hafa gengið svona upp og ofan. Hef samt ekki enn fengið einkunnir út úr þeim.. er svosum ekki mjög spennt yfir því að sjá þær 8| Annars er ég líka búin að vera að pirrast yfir þessari skítanettengingu hérna í sveitinni.. hún er ekki aaaaaaaaaalllllllvvvveeeeeggggg að gera sig hérna!! Var t.d. alveg netlaus í gær og gærkvöldi. Ég ákvað að vera heima og semja ræðu í gærkvöldi af því að ég átti að mæta í tíma og flytja hana kl. 8 í morgun. Ég var svona á síðasta snúning með að semja ræðuna (hversu mikið kemur það á óvart?!?!?) og þurfti því að klára í gær. Hefði viljað skreppa á kaffihúsið í gær af því að það var fullt að gerast hjá flestu öðru fólki. Svo um miðnættið ákveð ég að prufa að athuga hvort ég komist á netið svona rétt áður en ég fer að sofa. Viti menn ég kemst á netið og ég tékka póstinn minn sem ég hafði ekki gert allan daginn. Og hvað.............  haldiði ekki að tíminn sem átti að flytja ræðuna í féll niður!! Þannig að ef ég hefði vitað það þá hefði ég nú gert e-ð örlítið skemmtilegra í gærkvöldi!! En jæja ég fékk þó allavega að sofa aðeins út í morgun :) sem er vissulega bót í máli!!

Síðasta helgi fór aðallega í að fagna afmæli móður minnar með fjölskyldunni. Fórum í mat til systu og fengum dýrðlegan mat.. takk fyrir mig! Síðan kíktum við Anna Þóra aðeins í miðbæinn.. veit ekki alveg af hverju en það var samt alveg fínt. Held ég taki mér pásu frá djamminu þessa helgina.. en maður veit samt aldrei!!

Jæja ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra... ætla að fara að vinna verkefni í starfsmannastjórnun...... adios.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 23:03:12 / asagunn

Nei sko.........

mín bara búin að setja upp myndasíðu. HVAÐ ER AÐ GERAST HJÁ MÉR!!! Það var suðað í mér að setja inn ákveðnar myndir á netið og viti menn.. ég dreif bara í því... gjörðu svo vel Hildur mín ;)

Allavega vildi bara láta ykkur vita af þessum skemmtilegheitum.. endilega kíkiði á þetta þó merkilegt sé það nú ekki :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti