Jæja Guðrún... gjörðu svo vel!!
Núverandi Tími : 16:43
Núverandi Föt : gallabuxur, henson peysa og strigaskór
Núverandi Skap : Þreytt
Núverandi Hár : brúnt með smá ljósu með.. aðeins fyrir neðan
axlir
Núverandi Pirringur : Verkefni
Núverandi Lykt : uhh man ekki hvað heitir
Núverandi hlutur sem ég ætti að vera að gera : Fara að vinna..
fljótlega
Núverandi Skartgripir : Eyrnalokkar, hálsmen og úr
Núvernadi áhyggjur : Munnlegt próf fyrir áttunda bekk
Núverandi Löngun : að fara að sofa
Núverandi Ósk : Að klára æfingakennsluna með sóma
Núverandi Farði : Meik, maskari og kinnalitur
Núverandi Eftirsjá : Já.. það er svo margt.. of lítill tími til
að telja upp..
Núverandi Vonbrigði : veit ekki
Núverandi Skemmtun : Að svara þessu klukki frá henni
Guðrúnu...
Núverandi Ást : Fjölskyldan
Núverandi Staður : Kennó
Núverandi Bók : Napoleons skjölin eftir Arnald Indriða
Núverandi Bíómynd : don't know... langar samt að sjá kiss kiss
bang bang
Núverandi Íþrótt : Það er nottla alltaf boltinn en ekki í
praksís.. frekar en nokkuð annað!
Núverandi Tónlist : Rokk! Er samt mjög hrifin af James Blunt
núna
Núverandi lag á heilanum : Humpty Dumpty sat on a wall!
Núverandi Blótsyrði : þau eru svo mörg.. get ekki valið á
milli!
Núverandi Msn manneskja : Það er e-ð fólk!
Núverandi Desktop Mynd : Á minni tölvu er það Steven Gerrard að
fagna evrópumeistara titlinum
En á þessari tölvu er bara e-r
kennómynd!
Núverandi Áætlanir fyrir kvöldið : Að glápa á imbann og njóta
þess að þurfa ekki að undirbúa kennslu fyrir morgundaginn 
Núverandi Manneskja Að Forðast : Enginn svo í viti til..
Núverandi Hlutir Á Vegg : e-r voða artí fartí verk sem ég botna
ekki í!
já hananú... þetta er búið.. hverja á ég að klukka... veit
svosum ekki hverjir hafa gert þetta dótarí... en ég klukka Erlu,
Hildi Rut, Söndru, Báru og Katrínu Dagmar... hihi.. 
En útí aðra sálma... það eru tveir dagar eftir í æfingakennslu
og ég get hreinlega ekki beðið
það verður reyndar bara easy
dagur á morgun því það er bara einn tími og hann fer í að horfa á
vidjó
föstudagurinn verður heldur ekkert voða langur.. við
verðum búnar kl. 11.10 og þá ætlum við Erla að skella okkur e-ð út
að borða til að fagna! Við getum samt ekki ákveðið hvert við ætlum
að fara.. any ideas? Ég er nottla með ákvörðunarfælni á mjög háu
stigi!!
En jæja.. best að drullast í vinnuna.. yfir og út!