|
|
14.08.2008 13:04:08 / asagunn
Já þá er maður búinn að skila ritgerðinni og ég er flutt í bæinn. Það er gott að búa Kópavogi eins og einhver sagði!! Núna er bara að finna e-a vinnu.... veit einhver um e-ð gott??? Ég hélt án gríns að ég myndi ekki ná að skila ritgerðinni í tæka tíð, ekki það að ég hafi ekki verið búin með hana heldur tókst mér að brjóta prentarann sem ég var með í láni!! Síðan hringdi ég í prentþjónustu í Borgarnesi og hann ætlaði að redda mér... en þá gat hann ekki opnað skjölin á minnislyklinum.... omg það var smá stress í gangi en þetta gekk að lokum eftir miklar pælingar og prófanir og nú er bara að bíða og sjá hvort ég fái ekki að útskrifast  Jæja þarf að þjóta... þangað til næst
»
30.07.2008 13:31:42 / asagunn
Já nú styttist heldur betur í að maður flytji burt frá Röstinni. Áætlaður flutningur er nú bara á föstudaginn nk. Fáum svo íbúðina afhenta á morgun og stefnan tekin á að mála í flýti og koma sér fyrir á föstudegi og laugardegi... er það óraunhæft!!! nei nei svo klárum við bara að koma okkur fyrir þegar ég er búin að skila blessuðu ritgerðinni! Skil á henni eru 12. ágúst þannig að það er stutt í þetta! Vona bara að ég nái að klára hana hehe! Annars vil ég benda þeim á sem eru að hugleiða einhverntímann að skrifa lokaritgerð yfir sumartímann að gera það ekki! Nema að það sé útlit fyrir afar slæmt sumar veðurfarlega séð!!! Jæja... ætlaði bara svona að láta vita aðeins af mér.... ætla að halda áfram að reyna að klára ritgerðina  Þangað til næst!
»
11.06.2008 11:40:37 / asagunn
Já ég er ennþá til... það voru einhverjir að hafa áhyggjur af því að ég væri ekki lengur til hehe. Ætla að láta fylgja hérna stórskemmtilegar upplýsingar um mig... var búin að fá þetta sent í pósti en kippti þessu af blogginu hennar Erlu þar sem hún hafði einhverjar áhyggjur af mér hehe. 
1. ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? Já, afa mínum. 2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ? Úff ég man það nú ekki… líklega ekki langt síðan, á það soldið til að skæla á sumrin út af ofnæmi 3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ? Já svona skítsæmilega. 4. HVAÐA KJÖT FINNST ÞÉR BEST? Alltaf að verða meira hrifin af kjöti… lambið og kjúklingur hafa vinninginn. 5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ? Nei. 6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? Já vissulega… ég er svo svakalega skemmtileg hehe 7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ? Já, frekar. 8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ? Mig langar alveg en ég efast stórlega um að ég myndi nokkurn tímann þora því. 9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Get ekki sagt að ég sé mikið fyrir að borða á morgnanna… kannski einna helst banani. 10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ? Yfirleitt ekki. 11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKA ? Já það held ég. 12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? Súkkulaðiís 13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ? hmmmm góð spurning… 14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR ? bleikur 15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? Fullkomnunaráráttan 16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? That’s for me to know ;-) 17. VILTU AÐ ALLIR SEM ÞÚ SENDIR TIL SENDI ÞÉR TIL BAKA ? Ég held ég hafi ekkert fyrir því að senda þetta þannig að ég býst ekki við að neinn svari þessu. Búin að fá svona sent frá Sissú og Söndru samt. 18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ? grænum buxum og svörtum skóm. 19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ? Banani 20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ? Prófessor Jerry Rosenberg, þar sem ég er í fyrirlestri. 21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? væri örugglega svört! 22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ? úff get ekki valið einhverja eina ákveðna tegund… þoli samt ekki kókoslykt og vanillulykt! 23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ? Mömmu 24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR ? Já mér líkar mjög vel við Sissú og Söndru… Er samt aðallega að gera þetta út af commentinu hennar Erlu ;-) 25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? Handbolti, fótbolti, frjálsar… og margt fleira 26. ÞINN HÁRALITUR ? skol 27. AUGNLITUR ÞINN ? Marglitur en aðallega gænn einhverskonar… þau eiga stundum soldið erfitt með ákveða hvaða litur er ríkjandi hverju sinni! 28. NOTARU LINSUR ? kemur fyrir 29. UPPÁHALDSMATUR ? Mexikóskur matur er mjög góður sem og gott lambakjöt og kjúklingur. 30. HVORT LÍKAR ÞÉR BETUR, HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? Góður endir. Ég þoli ekki hryllingsmyndir. 31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? Ji minn ég man það ekki… svo langt síðan ég fór í bíó síðast. 32. KNÚS EÐA KOSSAR ? er hvorki fyrir knús né kossa nema nottla frá rétta aðilanum ;-) 33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ? Franska súkkulaðikakan sem ég baka með rjóma og jarðaberjum. 34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG SENDA TIL BAKA? Geri ekki ráð fyrir því að nokkur nenni að gera þetta. 35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ? Allir. 36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? svo margar bækur um hagvöxt sem og international business and economics heftið…. Mjög spennó! 37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? Ég á ekki músamottu. 38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ? Veronica Mars og fótbolta 39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ? Bítlarnir. 39b TODMOBILE EÐA SÁLIN? Sálin 40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ? Kína 41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ? hmmmm ég er róleg, vinn vel undir pressu og get verið mjög dugleg þegar ég tek mig til ;-) 42. HVAR FÆDDISTU ? Reykjavík. 43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ FRÁ ? Eins og ég segi þá geri ég ekki ráð fyrir að nokkur nenni að gera þetta… en þetta gefur kannski Önnu Þóru tilefni til að blogga hehe ;-)
»
06.05.2008 22:44:24 / asagunn
Hann pabbi minn á afmæli ídag. Til hamingju með afmælið elsku pabbi minn. Vonandi hafðirðu það sem allra best í dag.
»
28.04.2008 16:19:53 / asagunn
»
06.04.2008 22:22:15 / asagunn
Já þessi skemmtilegu próf eru búin þessa önnina, mikil gleði ríkir yfir því  Ég fór í fjögur próf og eitt meira að segja á laugardagskvöldi!! Það var munnlegt próf í lögfræði og það voru svo margir í kúrsinum að þeir ákváðu að nota fimmtudagskvöldið, allan föstudag og laugardag í þetta og viti menn ég var síðust! Ég átti að mæta kl. 20.30 en þeir gerðu ráð fyrir því að taka 20 mín á mann en ofreiknuðu sig heldur betur og ég mætti í prófið kl. rúmlega 19. En það gekk nú bara allt í lagi held ég... eða vonandi allavega Næst á dagskrá er svo bara hið stórskemmtilega misserisverkefni. Held að það gæti bara verið nokkuð skemmtilegt í þetta skiptið. Ætlum að fjalla um þjóðhagslegan sparnað... verður spennó  Er líka í mjög fínum hóp, 6 stelpur.. verður fjör hehe Að öðru leyti er nú mest lítið að frétta. Er bara búin að vera að læra eins og ég veit ekki hvað. Ég hef verið núna tvær helgar í röð hérna á Bifröst en fer í bæinn næstu helgi til að láta klippa lubbann á höfðinu á mér.. ji minn ekki veitir af!! Jæja hef ekki mikið meira að segja í bili.. þangað til næst!
»
15.03.2008 21:07:11 / asagunn
Ég held að það sé hægt að skjalfesta að ég er heimsins lélegasti bloggari sem til er!! Hins vegar ætti þetta að vera fyrsta skrefið.. þ.e. að breyta útlitinu  hehe Kannski að maður fari að vera duglegri... kemur í ljós!
»
04.12.2007 09:35:26 / asagunn
Já það styttist heldur betur í að við förum frá Kína. Förum næsta laugardag til Tælands og verðum þar í nokkra daga. Verð að viðurkenna að tilhlökkunin er töluverð þar sem það er orðið ansi kalt hérna í Shanghai. Erum með öll tiltæk ráð til að hlýja okkur. Loftræstingarnar eru settar á fullt... sumir kveikja á hárblásaranum sínum og svo er náttúrulega bara að klæða sig vel! Annars hljómar veðurspáin á Tælandi bara ágætlega... 30 stiga hiti og sól... kvarta ekki undan því  Annars hefur nú e-ð gengið treglega að senda hluta af dótinu okkar heim frá þessu skriffinsku landi. Ætluðum að senda í gegnum Jóna Transport en tollurinn hérna í Kína vill það ekki nema við höfum kvittanir fyrir öllu sem er í töskunni! Magnað! En erum að vonast til að þetta fari að ganga svona hvað á hverju.... erum alveg að fara heim og þurfum að koma töskunum okkar á undan okkur!! Annars er síðasta prófið á morgun. Skrifleg kínverska. Munnlega prófið gekk bara ljómandi höldum við og við erum búin að skila öllum ritgerðum sem átti að skila. Þannig að þetta er barasta alveg að verða búið. Nú er bara að fara að ganga frá og kaupa það allra síðasta sem maður ætlar að kaupa og svo erum við bara farin. Verðum á hóteli hérna síðustu nóttina okkar í Shanghai. Það er alveg við flugvöllinn þannig að það er stutt að fara á laugardagsmorgninum. Svo eigum við flug í hádeginu til Bangkok og ættum að vera að lenda þar um 18 leytið að staðartíma. Stoppum auðvitað í Hong Kong á leiðinni... hvað annað! Síðan á sunnudeginum er plönuð ferð í temple of the tigers, á e-n vatnamarkað og petting zoo og fleira. Sú ferð tekur allan daginn.. það verður bara gaman. Svo á mánudeginum förum við Ari til Hua Hin og við verðum þar í 10 daga og heimferð byrjar þann 20. des og við eigum að vera komin heim 21. des. Það verður voðalega ljúft  En jæja við bloggum síðar.. best að fara að læra fyrir kínversku  Zaijian
»
13.11.2007 15:02:53 / asagunn
Jæja kannski kominn tími á blogg... hmmmmm Það hefur nú kannski ekki rosalega margt drifið á okkar daga að undanförnu. Síðustu dagar hafa aðallega farið í ritgerðaskrif. Það er nefnilega komið að skuldadögum! Það þarf nefnilega að skila 4 ritgerðum á næstu dögum og svo er próf í kínverskunni í byrjun desember... fjör! Skrifin ganga svona sæmilega. Hægt að segja að þetta sé all in good time! Ég var að enda við að skrifa eina.. mjög stolt akkúrat núna. Ég var hins vegar ekkert svo agalega ánægð með sjálfan mig núna í vikunni þegar ég áttaði mig á því að ég hafði save-að yfir eins og eina vel hálfnaða ritgerð!!! Það ríkti ekki mikil gleði og hamingja þann daginn. Ég hef meira að segja ekki enn lagt í að byrja að skrifa þá ritgerð aftur heldur ákvað ég að klára að skrifa andsk.., helv... ritgerðina sem ég álpaðist til að save-a ofan á! En jæja þýðir víst voða lítið að gráta það heldur bara spýta í lófana og skrifa nýja! Annars er nú heldur betur farið að styttast í annan endann á þessari ævintýraför okkar. Ekki nema 25 dagar þangað til að ferðinni er heitið til Tælands og ekki nema 38 dagar þangað til við komum aftur til Íslands. Tilhlökkun er alveg farin að segja til sín en okkur hefur engu að síður liðið mjög vel hérna í austrinu. Hins vegar er gríðarleg tilhlökkun í almennilegan mat, það verður alveg að segjast eins og er. Förin til Tælands er líka ákaflega spennó. Verðum í Bangkok í 2 daga á Radison hótelinu. Stefnan er tekin á að fara í Temple of the Tigers og fá að klappa tígrisdýrum og svona Svo er ferðinni heitið til strandabæjarins Hua Hin og planið er að skoða aðeins ströndina, fara á jet-ski, sötra kokteila og vörka tanið Verðum á svaka flottu hóteli sem ég man ekkert hvað heitir en við verðum í svona litlum hut og svo er sundlaug í garðinum og svo sundlaugabar og spa... mmmmmmmm.... hlakka til  En talandi um tígrisdýr! Þá skelltum við okkur í dýragarð fyrir allnokkru síðan.. gleymdist bara alveg að minnast á það síðast! En þetta var ansi skemmtilegur garður. Hann er svona wild-life garður. Það fór hins vegar eitthvað lítið fyrir þessu wild-life! Vorum svaka spennt að fara í rútuferð um wild-life hlutann af garðinum. Sú rútuferð var hins vegar ekkert agalega spennandi þar sem bensíngjöfinni var þrusað í botn og lítið stoppað til að skoða dýrirn. Dýrin voru svo líka bara á pínulitlu svæði þar sem þau fengu að ganga „villt“. Restin af garðinum var hins vegar mjög skemmtilegur. Maður fékk að fara á úlfaldabak og svo tók fíll okkur upp með rananum... mjög skemmtilegt Reyndar var annar fíll sem var ekkert svo svakalega skemmtilegur! Hann var innan svona lágreystrar steingirðingar og fyrir framan girðinguna var lítil spræna. Fíllinn var ógulega skemmtilegur þegar við vorum að taka myndir af honum og skellti sér upp á afturlappirnar og otaði rananum upp í loftið og blístraði. Svo gerði hann sér lítið fyrir og setti ranann ofan í sprænuna og sprautaði svo vatni á okkur.. helvískur! Og hver blotnaði mest... jú mikið rétt ÉG! Myndavélin hans Ara fékk líka væna gusu.. ekki alveg nógu sáttur við það.. skiljanlega! En þetta var samt alveg hrikalega fyndið og ég var alveg holdvot af ógeðslega skítugu fílavatni... oj bjakk! Þetta var mjög skemmtilegt allt saman.. fórum svo og sáum sæljóna sýningu.. hún var mjög skemmtileg.Daginn eftir fórum við svo í skemmtigarð og ég fór í rússíbana í fyrsta skiptið. Það var rosalega gaman. Þetta var nú reyndar bara lítill rússíbani en hann fór samt í heilhring... frekar skrýtin tilfinning. Svo fór um við í risa parísarhjól og sáum þvílíkt útsýni, það var mjög skemmtilegt. Það sem eyðilagði þetta allt saman var svo eitthvað tæki sem fór í milljón hringi og maður kom alveg grænn út úr því. Manni leið eins og maður hafði verið á heiljarinnar fylleríi daginn áður, maður varð bara þunnur eftir þetta tæki. Það var svo bara ekkert farið í neitt mörg tæki eftir þetta, enda kannski orðið gott bara... svona fyrir fullorðið fólk!! Jæja ætli ég láti þennan pistil ekki bara duga í bili... betra að eyða skrifkröftunum í ritgerðir. Biðjum að heilsa á frón  P.s. það eru e-ar nýjar myndir inni á myspace-inu.
»
28.10.2007 15:55:37 / asagunn
Jæja þá erum við komin aftur til Shanghai eftir ferðalag helgarinnar. Já við skelltum okkur í smá ferðalag til Nanjing um helgina. Það tók ekki nema um 2 klst í lest að fara þangað þannig að það var stutt og laggott. Vorum meira að segja á first class í lestinni, þvílíkur lúxus fyrir utan pirrandi barnið og mömmuna fyrir aftan okkur. Veit ekki hvor var meira pirrandi, grenjandi barnið eða mamman sem sagði mama, baba og gege til skiptis. Var semsagt að reyna að venja barnið á að segja mamma, pabbi og stóri bróðir. Alveg mega pirrandi!! Svo reyndar þögnuðu þau.. eða öllu heldur við sofnuðum þannig að þau hljóta að hafa þagnað!! Við lögðum af stað á laugardagsmorgni og vorum bara að koma núna áðan eða á sunnudagskvöldi. Við gistum á 5 stjörnu hóteli, svakalega flott, og það kostaði ekki nema um 5000 kr. nóttin. Ekki slæmt það! Skoðuðum svo Confusius temple og reyndum að versla smá. Ari náði að versla slatta en ég er svo stór og feit að ég gat bara ekki fengið neitt á mig nema peysur! Frekar pirrandi að geta ekki verslað neitt. Ætlaði að kaupa á mig strigaskó frá Adidas og ég hélt nú alveg að ég fengi skó á mig þar. Það var nú heldur betur vitleysa hjá mér!!! Ég sýndi afgreiðslumanninum skóna og spurði um 40 á ensku. Hann skildi náttúrulega ekki neitt þannig að ég sagði 40 á kínversku. Hann horfði smá stund á skóna, horfði svo á mig og leit svo á fæturnar á mér og hló og sagði meiyou eða nei það eigum við ekki til! Honum fannst ég frekar bjartsýn að halda að ég gæti fengið skó á mig! Svo fórum við í aðra adidasbúð og það var það sama... bara hlegið að mér og sagt meiyou! Svo var mér bent á einhverja forljóta skó sem voru til í 40! Nei takk! Svo mátaði í eina skyrtu í vero moda og hún var í stærð large sem ég er vön að vera í heima. En ekki í Kína! Ég ætlaði nú varla að koma henni upp um upphandlegginn á mér hún var svo þröng! Það er sko ekki tekið út með sældinni að vera hávaxin og ekki eins og tannstöngull í laginu í Kína! Ari gat hins vegar verslað eins og áður hefur komið fram. Hann keypti t.d. í einni búð einar gallabuxur, eina skyrtu og eina peysu með skyrtu innan undir á innan við 5000 kr.!! ekki slæmt! Svo keypti hann líka eina adidaspeysu og einn pumabol. Þannig að hann gerði alveg ágætiskaup og átti ekki í vandræðum með að fá á sig föt! En jæja nóg um það. Hótelið sem við vorum á var mjög flott. Veitingastaðurinn var hins vegar alveg agalegur. Við pöntuðum okkur sirlon steik og það var held ég bara ein versta kjötsneið sem ég hef smakkað. Þvílíkur viðbjóður! En að öðru leyti var hótelið rosa flott og mjög góð þjónusta. Nanjing var mjög fín og mig langar alveg að fara þangað aftur og kannski eyða meiri tíma þar. Þetta var heldur stuttur tími en samt gaman að kíkja aðeins út fyrir Shanghai. Annars hefur mig lengi langað til að deila með ykkur svona hvernig Kínverjar eru. Þeir eru nefnilega afar spes svo ekki sé nú meira sagt!! Svona í stuttu máli þá eru þeir: Sóðar – Kínverjar hrækja út um allt, hvar sem er og hvenær sem er! Og það er sko ekkert verið að tuffa lítilega heldur sækja þeir ógeðið lengst ofan í maga með þvílíkum látum og ógeðheitum. Svo bara láta þeir gossa hvar sem er. Skiptir engu máli hvort það sé utan eða innan dyra! Sáum t.d. einn um daginn hrækja inni í lestinni og ekki nóg með það heldur ældi hann svo í poka! Það var eitt það ógeðslegasta sem ég hef séð og heyrt!! Skítastuðullinn hjá Kínverjum er líka allt annar heldur en við eigum að venjast. Þegar við fengum íbúðina þurftum við að taka til hendinni og þrífa. Þurfti t.d. að taka klósettið í gegn en þau voru búin að sýna okkur að það væri nú búið að þrífa á bak við hillusamstæðuna og svoleiðis. Gardínurnar eru líka ógeðslegar.. fær helst á tilfinninguna að þær dragi bara frá og fyrir sjálfar!! Þeir prumpa líka bara þegar þeim hentar, þeir eru sko ekkert að reyna að fela það neitt sérstaklega! Eftirminnilegast er þegar Ari lenti svo allsvakalega í prumpi Kínverja í lestinni til Peking!! Kunna ekki borðsiði – að sitja við hliðina á Kínverjum á veitingastað er hrikalegt. Það fær mann alveg til að missa matarlystina. Þeir smatta, sötra og spýta út úr sér beinum og öðrum aukahlutum bara út úr sér. Þeir borða nefnilega t.d. fisk í heilu lagi og spýta svo út úr sér beinunum!! Ekki mjög geðslegt! Frekir – Kínverjar eru svakalega frekir. Þeirra mottó er að ef þú treður þér ekki þá kemstu ekki. Og líka ef þú treður þér ekki þá missirðu af einhverju þó það sé engin hætta á því að þú missir af neinu! Dæmi um þetta er að fara í metroið hérna. Við höfum lent í mega troðningi í lestinni nokkrum sinnum. Eins gott að maður sé ekki mjög nojaður gagnvart ókunnugu fólki!! Andfúlir – ó mæ gúddness!! Maður hefur alveg fundið það í troðningnum í lestinni!! Ég held líka að þeir viti ekki alveg til hvers tannburstinn og tannkremið er. Margir eru með hrikalega brenndar tennur, ekki bara fátæka fólkið heldur líka vel menntaða og efnaða fólkið. T.d. er einn kennarinn okkar sem er á fertugsaldri með fjöldann allann af gráðum með svartar tennur.. það er hrikalegt. Rífast mikið – þeir eru alltaf að rexa og pexa e-ð. Við höfum margoft orðið vitni af rifrildi úti á götu. Við höfum meira að segja orðið vitni af slagsmálum úti á götu um hábjartan dag. Það var kona og tveir menn sem voru í slagsmálum. Konunni var hrint og hún datt í götuna og svo voru karlarnir e-ð að sparka og kýla.. frekar fyndið. Svo kom lögreglan og allt fór í hávaða rifrildi!! Með fáránlega langar neglur – Já það er alveg ótrúlega skrýtið! Karlmenn eru með fáránlega langar neglur, þær eru kannski 6-7 cm á lengd! Þetta á víst að vera merki um velsæld. Við höldum hins vegar að þær séu nú bara til að klóra sér eða að skafa út úr eyrunum á börnunum sínum... höfum að minnsta kosti orðið vitni af því!! Tala ensku hrikalega þó þeir geti lesið og skrifað ágætlega – Kennararnir okkar eru misjafnir. Þeir tala sumir allt í lagi ensku og sumir tala bara hrikalega ensku. En þeir geta yfirleitt skrifað hana alveg rétt og eiga ekki í erfiðleikum með að lesa hana. Einn kennarinn okkar sem kennir okkur Chinese law er alveg hrikaleg.. maður skilur bara ekki neitt hvað hún er að tala um enda skrifar hún eiginlega allt sem hún segir upp á töflu. Hún var að segja okkur að enskukennsla í Kína einkenndist af því að læra að lesa og skrifa og engin áhersla á talað mál. Þannig að það er kannski ekki nema von að þeir eigi erfitt með að tala. Svo eru náttúrulega langflestir Kínverjar sem kunna ekki stakt orð í ensku og hlæja bara að manni þegar maður spyr hvort þeir tali ensku! Ganga um í náttfötum – Já náttföt í Kína eru sjálfsagt ekki notuð til að sofa í. Kínverjar eru allavega í þeim úti á götu og finnst þau vera hrikalega fín. Konurnar t.d. fara í háu hælana við og eru svo fínu fínu feik gucci töskurnar sínar... agalega lekkert! Kínverjar, þá aðallega karlmenn, eru líka duglegir að girða sig upp í handakrika. Alveg hrikalega smekklegt! Vinna margir við það sama eða ekki neitt – það eru náttúrulega rosalega mikið til af Kínverjum og það þarf að finna störf fyrir allt þetta fólk. Á hverjum vinnustað eru líka rosalega margir að vinna. T.d. á ekki mjög stórum veitingastað eins og pizza hut eða papa john‘s eru c.a. 15 manns að vinna við það að þjóna til borðs. Á Íslandi myndu kannski 4 eða 5 vinna við það sama! Við lentum t.d. í því á papa john‘s að við vorum að fá pizzuna okkar kom ein stelpa til að færa til diska og þess háttar svo að önnur gæti komið með pizzuna okkar, magnað! Ein til að þess að færa til og ein til að rétta!! Svo er rosalega mikið af fólki að vinna við að sópa götur eða skúra gólf í stofnunum eða mollum. Svo hræra þau bara í skítnum með sömu skítugu tuskunni aftur og aftur! Alega ótrúlegt! Vinalegir – það má segja margt slæmt um Kínverja en þeir eru nú ekki alslæmir! Þeir eru oftast afar vinalegir og hjálpfúsir ef maður þarf á hjálp að halda. Ef maður spyr til vegar þá fara þeir alveg með mann á staðinn ef þeir geta ekki útskýrt hvert maður á að fara. Svo þegar maður heilsar þeim á kínversku þá heilsa þeir alveg með brosi á vör og voða ánægðir.
En svona er þetta bara. Menningarmunurinn er rosalega mikill og við höfuð lítinn rétt á að dæma aðra því ekki erum við fullkomin. Við erum bara meira private og gefum ekki mikið af okkur út á við.  Jæja ætli ég láti þessa romsu ekki bara duga í bili... þangað til næst.
»
22.10.2007 14:26:38 / asagunn
Hún Inga Dóra á afmæli í dag og er hún að sjálfsögðu á besta aldri stelpan. Innilega til hamingju með daginn skvísa og hafðu það sem allra best í dag. Kveðja frá langtíburtistan 
»
18.10.2007 09:36:15 / asagunn
Hún Erla á afmæli í dag. Að hennar sögn er hún 24 ára gömul en ég veit betur Engu að síður er hún á besta aldri  Innilega til hamingju með daginn og hafðu það sem allra best í dag  Kveðja frá Kína
»
15.10.2007 10:59:08 / asagunn
Jæja það kom að því gott fólk að það skrifast e-ð frá okkur hérna á þessu bloggi Það er nú ansi margt búið að gerast síðan síðast var bloggað. Anna systir hefur verið í heimsókn í tæpar 2 vikur og fer nú að styttast í annan endann á þeirri heimsókn. Við erum búin að gera ansi margt síðan hún kom, og hún hefur einnig verið afar dugleg að skoða borgina á meðan við höfum verið í skólanum. Það sem við erum búin að gera á meðan á dvöl hennar hefur staðið: - Farið í dinner með forsetanum og spúsu hans. Ég leitaði eins ég veit ekki hvað eftir skóm til að vera í um kvöldið því ég hafði látið sauma á mig svaka flottan kjól. Það er ekki auðvelt að finna skó á kvenmann með stórar fætur, það er alveg deginum ljósara!! En þeir fundust loksins eftir mikið puð! (Maður var næstum of seinn að hitta forsetann út af þessu
skóveseni!!) - Farið í flottan dinner á hæsta hóteli heims, Grand Hyatt, og farið á barinn á 87. hæð. Magnað! (myndin hérna til hliðar).
- Fórum í Oriental Pearl tower sem er 350 metrar á hæð. Fórum að sjálfsögðu upp á efstu hæðina og skoðuðum útsýnið. Það er alltaf magnað að vera svona hátt uppi og líta í kringum sig! Þetta var reyndar ein sú dýrasta og lengsta lyftuferð sem við höfum farið í. Þurftum að bíða í u.þ.b. 2 tíma til að komast á toppinn. Við héldum að við yrðum hungurmorða því við vorum ekkert búin að borða áður en við fórum þarna. Við bjuggumst ekki alveg við að þurfa að bíða svona asskoti lengi!! En þetta var nú alveg þess virði engu að síður.
- Fórum á Formúlu 1 kappakstur og sáum Hamilton keyra út af! Þetta var alveg mögnuð reynsla að fara á formúluna og þvílíkur hávaði sem var þarna, eins gott að maður var með eyrnatappa!!
- Svo er búið að skoða allskonar túrista dæmi og Anna er búin að vera hrikalega dugleg að fara og skoða allt milli himins og jarðar, þá sérstaklega þegar við erum í skólanum. Hún var nú reyndar svo fræg að koma með okkur í einn kínverskutíma kl. 8 að morgni... geri aðrir betur sem eru í fríi!
Annars gengur skólinn sinn vanagang. Kínverskan er fín og hefur bara verið að ganga ágætlega. Það er samt alveg magnað hvað mér finnst þeir byrja á öfugum enda í að kenna manni tungumálið. Maður lærir að segja hello í 21. kafla!!! Alveg ótrúlegt. Við erum heldur ekki búin að læra hvernig maður á að segja hægri, vinstri eða beint áfram til að bjarga sér í leigubílum! Það er bara verið að læra um hvernig heilsan sé, hvað séu margir í fjölskyldunni og hvenær fólk eigi afmæli. Mér er eiginlega alveg sama hvenær Kínverjar eiga afmæli, svona yfir höfuð!! Erum reyndar aðeins farin að læra dagana, mánuðina og klukkuna.. þannig að þetta er kannski allt í áttina!Það er alveg magnað hvað þetta líður hratt þó að manni finnist þetta í raun líða frekar hægt þegar maður er í skólanum!! OMG hvað tíminn er stundum lengi að líða í skólanum!! (maður heldur stundum að maður muni aldrei komast þaðan út!) Við erum hálfnuð með dvölina okkar hérna í Kína en samt erum við í rauninni bara á 4. viku í skólanum! Og fyrsta vikan var ekki full skólavika heldur vorum við bara í kínversku þá vikuna! Skólinn er búinn 7. desember og svo fljúgum við bara til Tælands þann 8. des og svo komum við heim 21. des. Jæja held við höfum þetta ekki lengra í bili. Zaijian 
»
26.09.2007 15:34:27 / asagunn
Jæja þá hefur lífið nokkurn veginn hafið sinn vanagang hérna í Kína. Skólinn er byrjaður á fullu og maður er farinn að vakna fyrir allar aldir til að mæta í skólann og tala kínversku! Skólinn er frekar spes, svo ekki sé meira sagt. Kennararnir eru misagalegir í enskunni og maður á stundum alveg í stökustu vandræðum með að skilja hvað þeir eru að segja. Hins vegar virðast þeir flestir skrifa ágætlega rétta ensku en þeir afbaka sum orð svo hrikalega með hreimnum að maður missir allt samhengi með því sem þeir eru að segja. T.d. um daginn þegar við vorum í fyrsta tímanum í business law þá var kennarinn að tala um að opna markaði. Allt í lagi með það svo fór hún að tala um markaði með vörur en við skildum ekki alveg hvað hún var að segja til að byrja með því hún sagði alltaf „goose market“! Við veltum þessu mikið fyrir okkur af hverju í veröldinni hún væri að tala sérstaklega um markaði með gæsir! (N.b. þá erum við ekki að tala um markaði sem maður fer að versla í heldur er þetta business language!). Svo eftir smá vangaveltur þá komumst við að þeirri niðurstöðu að hún væri að tala um „goods market“! Það eru mörg fleiri svona dæmi um kennarana og eiga sjálfsagt eftir að verða töluvert fleiri, svona miðað við að þetta er bara 2. vikan í skólanum!! Það er líka mjög skemmtilegt þegar maður er að spyrja spurninga sem krefjast tiltölulega flókinna svara þá verða þeir eins og spurningamerki í framan og skilja ekkert hvað maður er nú að bulla! Svo líka þegar maður er að spyrja hvað orð þýða þá fær maður e-ð svar en maður áttar sig á engan hátt hvað kennarinn er að segja og er alveg jafn nær og áður en maður spurði!! Skemmtilegt! Að öðru leyti er þetta nú bara mikil upplifun og maður er að upplifa svo allt annan heim heldur en maður er vanur heima! Standardinn er allt, allt annar heldur en heima! En það verður þó að koma fram að sumir kennarar nota skjávarpa og tölvu!! Ótrúlegt. Ég, Ása Gunnur, hef þó um eitt stórt vandamál að kvarta í skólanum! (eða ég held alveg örugglega að það sé í skólanum). Það er verið að éta mig lifandi þarna inni!! Ég og Berglind viljum allavega meina að þetta séu maurar sem eru að éta okkur. Án gríns þá taldi ég 16 bit á líkamanum áðan!!! Þar af eru 11 á vinstri leggnum!!! Eitt er á baugfingri og það er að gera mig geðbilaða!! Puttinn á mér er mjög bólginn en það sést eiginlega ekki að það sé bit á honum!! Þessi bit eru heldur ekkert af neinni venjulegri stærð heldur eru þetta, í flestum tilfellum huge bit á stærð við pottahlemma!! Mjög skemmtilegt það. Það eru kannski sumir sem vita hvernig þetta lítur út! Ég gerðist meira að segja svo fræg að fara til skólalæknisins á campus! Það var mjög skemmtileg lífsreynsla!! Berglind fór fyrr í morgun og fékk e-ð krem þannig að ég ákvað að skella mér líka og fá krem. Ég labba inn þar sem rauði krossinn er fyrir ofan hurðina. Þegar inn er komið þá leið mér eins og ég væri komin í fangelsi og þrifalegheitin alveg í samræmi við það! Ég vissi ekkert hvert ég átti að fara og endaði að fara þar sem stóð cashier. Þar borgaði ég 1 rmb sem er á við 10 kr. og fékk e-n miða og hún sagði mér að fara upp á efri hæðina sem ég gerði. Þegar þangað var komið rakst ég á eina konu sem gat babblað e-a ensku. Hún leit á bitin og sagði: „yes a woman this morning“ og ég bara yes my friend og þá skrifaði hún á e-n miða og sagði mér að fara niður og koma svo aftur upp þegar ég væri búin að fá medicine! Ég fór svo niður og á sama stað og borgaði 8 rmb (80 kr.) og fékk annan miða. Svo vissi ég ekkert hvert ég ætti að fara með hann. Endaði með því að Ari sagði Ní háo við e-ð konu og sagði svo medicine og þá fékk ég kremið góða. Síðan fór ég aftur upp á aðra hæð og til læknisins aftur og hún tók túpuna og opnaði hana. Síðan kreistu hún dágóða slummu úr túpunni og smellti því á 2 bit (og það engar smá slummur!!) og b.t.w. þá er ég með 16 bit!!. Síðan sagði hún mér bara að fara! Mjög skemmtileg spítalaferð!! Mér líður aðeins betur í bitunum og vonast til að geta sofið í nótt, hef ekki verið að sofa vegna kláða  Við vorum ekki búin að segja ykkur að við fjárfestum í fákum um daginn, og það rafmagnsfákum!! Núna þeysumst við bara út um allar trissur á blússandi siglingu!! Reyndar höfum við nú ekki ferðast á þessu mikið hingað til en þetta hefur verið að ferja okkur í skólann og út í mollið sem er ekki svo langt frá okkur. Þetta er hins vegar ákaflega skemmtilegt farartæki Við keyptum það á 1900 rmb (19000 kr.) og búumst við því að geta selt það aftur á 1000 til 1500 rmb, eftir því hvernig ástandið er á því. Að vera í umferðinni hérna er náttúrulega bara geðbilun. Hins vegar er umburðarlyndið hérna ótrúlegt. Ef maður svínar þá stoppar bara bíllinn eða hjólið sem maður er að svína fyrir sem er e-ð öðruvísi en maður er vanur heima! Og maður hefur tekið eftir því að leigubílstjórar eru ekkert að pirra sig á því neitt. Eitt skiptið t.d. í Peking þá vorum við á aðalbraut á ljósum og það voru bílar að beygja yfir götuna og leigubílstjórinn hleypti c.a. 8 bílum og beið bara rólegur á meðan! Merkilegt! Flautan er líka óspart notuð, hún er eiginlega bara svona til að láta vita af sér. En heima er flautan meira notuð sem svona „hvað ertu að hugsa þarna fávitinn þinn, passaðu hvað þú ert að gera!!“ Talandi um Ísland þá er okkur skiptinemunum hérna í Shanghai boðið í kvöldverð og entertainment með forseta vorum og spúsu hans! Þar verður líka fjöldi annarra gesta. Þetta er gert í tilefni af special olympics sem eru núna í næstu viku hérna í Shanghai. Þar verða hvorki meira né minna en 32 keppendur fyrir Íslands hönd. Stefnan verður svo tekin á að kíkja á leikana þegar þeir byrja og fylgjast með einhverjum af þessum keppendum og hvetja þá áfram Síðan á jafnvel að reyna að komast á formúluna sem haldin verður í Shanghai helgina 5.-7. okt. Jæja við látum þetta gott heita í bili. Biðjum ykkur vel að lifa.
»
19.09.2007 11:59:14 / asagunn
Langaði bara að benda á að ég setti nokkrar myndir inn á myspace síðuna mína ef þið viljið skoða www.myspace.com/asagunnur Endilega kíkið á þær  Annars er lítið að frétta nema að skólinn er byrjaður og hann er ekki alveg eins og maður á að venjast að heiman. Allar kennslustofurnar eru eins, með krítartöflum og það er sjaldnast tölva eða neitt tæknilegt inn í þeim. Borðin og stólarnir eru líka af einni verstu tegund, harðir og óþægilegir. Borðin eru ekki fyrir fólk yfir 150 cm á hæð en það geta jafnframt 2 setið á hverjum stól, þeir eru svo breiðir. Við erum samt búin að komast að því að það er til þess að Kínverjarnir geti lagt sig í frímínútum. Það er alveg magnað með þessa Kínverja, þeir leggja sig allsstaðar þar sem þeir fá tækifæri til. McDonalds er sérstaklega vinsæll staður til að hvíla sig á og jú að læra eða vinna, alveg magnað! Ég get ekki sagt að mér lítist vel á þetta kínverskunám svona fyrst til að byrja með, finnst einhvern veginn við vera byrja á öfugum endanum! Okkur finnst að við ættum að læra einföldu hlutina fyrst eins og hægri, vinstri, hæ, bæ, telja, liti og þess háttar en nei þess í stað er byrjað á að kenna okkur að spyrja: how is your health!! Athyglisvert, og við verðum bara hér í 3 mánuði, ekki eins og við séum að fara að vera altalandi í kínversku!! En svo byrjar skólinn fyrir alvöru í næstu viku, en þá bætist Chinese culture og lögfræði við sem gæti verið meira spennandi. Það hafa nú verið e-ð misjafnar sögur af þessum fellibyl sem átti að koma yfir Shanghai í gær. Það rigndi eins og hafi aldrei rignt áður í gær og þurftum við nánast að synda heim úr skólanum. Við áttum svo von á að fellibylurinn myndi skella á um miðnættið í gærkvöldi en ekkert gerðist. Síðan í morgun vöknuðum við furðu lostin um að allt væri sallarólegt og veltum fyrir okkur hvar fellibylurinn væri. Það var þetta fína veður í morgun en svo fór að rigna. Áttum svo að fara í myndatöku fyrir stundent ID eftir hádegi og þegar við fórum heim var farið að hvessa líka. Fengum svo sms frá kínversku vinkonu okkar um að fellibylurinn myndi skella á kl. 15.20 í dag, stundvíslega! Ég efast nú um að e-r fellibylur sé í gangi núna, heldur er þetta bara týpísk, djúp, íslensk lægð með roki og rigningu þannig að það er allt í gúddí gír enn sem komið er allavega! Við lásum líka á erlendum fréttavefum í dag að dregið hefði úr krafti bylsins, sem betur fer Annars lásum við líka á mbl að hann hafi actually gengið yfir í nótt og höfðu verið minni skemmdir út af honum heldur en búist var við. Hann fór þá algjörlega fram hjá okkur því veðrið núna er miklu verra heldur en var í nótt. Vonum bara að þetta veður gangi yfir fljótt, frekar leiðinlegt að hanga inni vegna veðurs í útlandinu! Jæja við látum þetta duga í bili, fólk væntanlega enn að jafna sig eftir síðustu lesningu (þ.e.a.s. ef fólk hefur lagt í hana ) Biðjum að heilsa heim
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|